Hvaða foreldri kannast ekki við það hversu erfitt það getur verið að láta sokka haldast á litlum tásum sem öllu sparka af sér?
Stuckies® var stofnað til að leysa þetta vandamál. Með sílikon doppum að innan og teygjum í kringum rist og ökla haldast Stuckies® sokkarnir á sínum stað.
Stuckies® leggur áherslu á gæði og góða hönnun og stuðlar að minni neyslu með vörum sem endast vel og haldast á sýnum stað. Sokkarnir eru framleiddir í Tyrklandi, landi sem þekkt er fyrir góðan bómul og hafa bæði STANDARD 100 og OEKO-TEX® vottun – sem er þekktasta vottun heims með tilliti til skaðlegra efna og segir okkur að sokkarnir séu algjörlega skaðlausir fyrir heilsu barnanna okkar.